Verð á mjólk umfram greiðslumark hækkar

Stjórnir Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar hafa samþykkt verðhækkun á mjólk umfram greiðslumark þannig að frá 1. apríl-30. júní 2013 verða greiddar 42 kr. á lítra sem svarar til 2% af greiðslumarki hvers og eins og 36 kr. á lítra fyrir aðra umframmjólk.

Þessi verðákvörðun verður endurskoðuð um mánaðamót júní/júlí eftir verðþróun á heimsmarkaði að því er fram kemur í tilkynningu frá Auðhumlu og MS.

/gj