Verð á mjólk til bænda hækkar um 2,49 kr/l. þann 1. okt.

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að afurðastöðvaverð til bænda hækki um 2,49 kr. á lítra mjólkur, úr 80,43 kr. í 82,92 kr., þann 1. október n.k. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um 2,85 kr/l. og samanlögð hækkun heildsöluverðs er því 5,34 kr. á hvern lítra mjólkur. 
Hækkunin er til komin vegna hækkana á aðföngum og kostnaði við rekstur undanfarna 15 mánuði, en mjólk og mjólkurafurðir voru síðast hækkaðar 1. júlí 2012, að því er kemur fram hjá nefndinni.