Upplýsingar um tvö ný ungnaut

Bryti 11070
Bryti 11070

Nú eru komnar inn upplýsingar um tvö ný ungnaut úr 2011 árgangi nauta á vef nautaskráarinnar (www.nautaskra.net). Þetta eru nautin Bryti 11070 frá Akurey 2 í V-Landeyjum undan Gylli 03007 og Búbót 580 Stígsdóttur 97010 og Kjarni 11079 frá Seljatungu í Flóa undan Ófeigi 02016 og Seríu 313 Laskadóttur 00010. Bryti er sammæðra Skjá 10090.
Ungnautaspjöld með upplýsingum um þessi naut verða tilbúin til útsendingar innan tíðar en þau er að finna á vef nautaskráarinnar á pdf-skjölum að venju. Þessi naut munu fljótlega fara í dreifingu en þetta eru síðustu nautin úr 2011 árgangnum sem koma til dreifingar og verða þeir þá orðnir 26 talsins.

gj