Ungnautaspjöld 12001-12040

Vegna breytinga sem urðu á mjólkurflutningum á Vesturlandi nú í haust virðist dreifing ungnautaspjalda fyrir naut á númerabilinu 12001-12040 hafa riðlast eitthvað.
Við biðjum þá bændur sem ekki hafa fengið þessi spjöld en vilja fá þau að láta RML vita í síma 516 5000 eða á netfangið rml@rml.is.
Athugið að þetta á eingöngu við um bændur á Vesturlandi!

Við bendum einnig á að spjöldin er að finna á pdf-formi á nautaskra.net þar sem hægt er að prenta þau út eða skoða að vild.

/gj