Umsóknum um leyfi fyrir líflambakaupum skal skila inn fyrir 1. júlí

Minnt er á að þeir sem hyggjast kaupa líflömb næsta haust skulu sækja um það rafrænt til Matvælastofnunar, í gegnum heimasíðu stofnunarinnar www.mast.is, fyrir 1. júlí nk.

Þeir sem vilja geta haft samband við ráðunauta RML í síma 516 5000 og fengið aðstoð við að sækja um.

Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 1. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar.

Sjá nánari upplýsingar á vef Matvælastofnunar:

Líflambaflutningar

Söluaðilar líflamba 

Umsókn um kaup á líflömbum

amj/okg