Umsóknir um lán eða styrki úr Stofnverndarsjóði íslenska hestakynsins

Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 470/1999 um sama efni.

Verkefni sjóðsins eru:

  • Að veita fé til þróunarverkefna í hrossarækt, sem nýtast til styrktar íslenska hrossastofninum.
  • Að veita lán og styrki til kaupa á sérstökum úrvalskynbótagripum ef sannað þykir að þeir verði fluttir úr landi að öðrum kosti. Hér væri um að ræða gripi sem gætu haft úrslitaáhrif á erfðabreytileika í stofninum, s.s. litafjölbreytni, eða byggju yfir einstæðu kynbótagildi í þeim eiginleikum sem prýða íslenskan hest.

Fagráðið tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2013. Nánari upplýsingar fást hjá Guðlaugi V. Antonssyni hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins á Hvanneyri.

Frestur til að skila inn umsóknum er til 1. desember 2013 og skal umsóknum skilað til Fagráðs í hrossarækt, Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnesi.

ga/okg