Umsóknarfrestur um jarðræktarstyrki og landgreiðslur er 1. október

Umsóknarfrestur um jarðræktarstyrki og landgreiðslur rennur út á miðnætti þriðjudaginn 1. október. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningar eða túnkortagerð þurfa að hafa samband við RML sem fyrst svo hægt verði að tryggja skil á réttum tíma.

Þegar búið er að skrá ræktun, uppskeru og áburðargjafir þessa árs er farið í „Skýrslur“ í Jörð.is og þar valið „Skrá skýrslu“. Ef upp koma athugasemdir þarf að skoða hvort að gleymst hefur að skrá eitthvað. Ef upp koma rauðar athugasemdir verður að lagfæra þær áður en hægt er að skila skýrslu í Jörð. Mikilvægt er að fara neðst á síðuna þegar búið er að velja „skrá skýrslu“ og þar verður að velja „Vista skýrslu í Jörð og senda hana til ráðuneytis“.

Athugið að ef ekki er búið að ná allri uppskeru af seinni slætti eða korni, þegar skýrslu er skilað er hægt að uppfæra upplýsingar varðandi það með því að skila skýrslu aftur í Jörð þó það sé eftir umsóknarfrest.

Þegar búið er að skila skýrslu í Jörð verður að skrá sig inn á Afurð, greiðslukerfi landbúnaðarins, og sækja um jarðræktarstyrki og landgreiðslur á grunni skýrslunnar sem skilað hefur verið í Jörð. Skýrsla í Jörð er ekki umsókn um jarðræktarstyrki eða landgreiðslur heldur forsenda þess að hægt sé að sækja um.

Sjá nánar:
Frétt matvælaráðuneytisins

/okg