Umsóknarfrestur um framlög til jarðræktar framlengdur til 20. september 2013

Ræktun eftir kal á Þverá í Öxnadal
Ræktun eftir kal á Þverá í Öxnadal

Eftirfarandi tilkynning var að berast frá Bændasamtökum Íslands:

Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að framlengja umsóknarfrest um framlög til til jarðræktar og hreinsunar affallsskurða, samkvæmt reglum nr. 707/2013 til 20. september n.k. Undir þetta falla einnig umsóknir um styrki til endurræktunar vegna kals. Umsækjendur geta skráð umsóknir sínar rafrænt í gegnum Bændatorgið á www.bondi.is. Umsóknareyðublöð eru einnig á heimasíðu BÍ.  

Umsækjendur eru engu að síður hvattir til að sækja um sem fyrst. Starfsmenn RML munu að sjálfsögðu aðstoða þá sem þess óska við umsóknir. Síminn okkar er 516-5000.

Sjá nánar: Upplýsingar og umsóknareyðublöð á vef BÍ 

bpb/okg