Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Eins og fram hefur komið liggur aflestur röntgenmynda af hækilliðum stóðhesta niðri vegna verkfalls dýralækna sem starfa hjá Matvælastofnun. Af þessum sökum hefur ekki verið hægt skrá þá stóðhesta á kynbótasýningar sem ekki voru komnir með staðfestingu á hækilmyndum í WorldFeng fyrir verkfall. RML vill koma því á framfæri við eigendur stóðhesta sem ætlunin er að sýna í vor en ekki hefur verið hægt að skrá á kynbótasýningar vegna þessa, að reynt verður að koma þeim að á þeim sýningum sem eftir eru í vor þrátt fyrir útrunna skráningarfresti, um leið og verkfall leysist eða önnur lausn fæst á málinu. Eigendum þessa hesta er bent á að hafa þá samband við RML þegar verkfall leysist til að finna lausn á skráningu þessara hesta.
lr/okg