Tilkynning vegna röntgenmynda af hækillið stóðhesta

Vegna verkfalls dýralækna sem starfa hjá Matvælastofnun hefur aflestur röntgenmynda og birting niðurstaðna þeirra inn í Worldfeng legið niðri.  Skýrt er á um það kveðið i viðauka við reglugerð 442/2011 um uppruna og ræktun íslenska hestsins að stóðhestar 5 vetra og eldri hljóti ekki dóm nema skilyrðum um myndatöku og birtingu hafi verið fullnægt.  Búið er að senda beiðni um undanþágu vegna þessa til Matvælastofnunar.

Eins og staðan er verða því hesteigendur sem bíða eftir yfirferð mynda og birtingu einnig að bíða með sýningu þar til verkfallið leysist eða fengist hefur undanþága.  

geh/gj