Tilboðsmarkaður með greiðslumark í mjólk

Drottning 355, móðir Nerós 12029
Drottning 355, móðir Nerós 12029

Við minnum á að næsti markaður með greiðslumark í mjólk fer fram þann 1. apríl n.k. Tilboðum um kaup eða sölu skal skila til Matvælastofnunar í síðasta lagi þann 25. mars n.k.

Nánari upplýsingar er að finna á upplýsingasíðu Matvælastofnunar um tilboðsmarkað með greiðslumark mjólkur, þ.m.t. hvernig skal skila inn tilboðum og hvaða gögn þurfa að fylgja. Þar má jafnframt nálgast kaup- og sölueyðublöð.

Ráðunautar RML veita ráðgjöf og aðstoð varðandi tilboðsgerð við kaup eða sölu á greiðslumarki.

Sjá nánar:

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um tilboðsmarkað með greiðslumark mjólkur

/gj