Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum á næsta ári, þ.e. bein- og gripagreiðslum, greiðslum út á kjötframleiðslu og fjárfestingastuðningi, er þátttaka í afurðaskýrsluhaldi. Fyrir þá sem nú þegar eru í skýrsluhaldi er um minni háttar breytingar að ræða en þeir sem utan þess standa þurfa að hefja skýrsluhald til þess að njóta stuðnings.
Athygli er vakin á því að þeir mjólkurframleiðendur sem ekki eru í skýrsluhaldi og allir framleiðendur nautakjöts (utan þeirra sem eru mjólkurframleiðendur og í skýrsluhaldi nú þegar) þurfa að tilkynna um þátttöku til Matvælastofnunar, Búnaðarstofu fyrir 27. desember n.k. í þjónustugátt MAST. ATHUGIÐ að til þess að skrá sig inn á þjónustugátt MAST þarf annað hvort rafræn skilríki eða Íslykil.
Nánari upplýsingar er að finna í grein sem birtist í Bændablaðinu í dag og fylgir hér með.
Starfsfólk RML er boðið og búið til aðstoðar í öllu því sem að skýrsluhaldi lýtur nú sem endranær.
Sjá nánar:
Breytingar á skýrsluhaldi í nautgriparækt: Skýrsluhald skilyrði fyrir greiðslum
/gj