Sýningum 4V kynbótahrossa frestað til miðvikudags - Frétt af heimasíðu Landsmóts hestamanna

01. júlí 2014
"Að vel ígrunduðu máli hefur verið afráðið að fresta öllum sýningum 4v hrossa til morguns.
Ný dagskrá og tímaplan hafa verið útbúin til að mæta þessari uppákomu (sjá www.landsmot.is).
Þetta nýja tímaplan gerir ráð fyrir að dómar á 4v hryssum hefjist kl.06:00 að morgni miðvikudagsins 2.júlí.
Áður birt landsmótsdagskrá á kynbótabraut þennan miðvikudag riðlast nokkuð.
Ennfremur reynist nauðsynlegt að byrja kl. 06:00 fimmtudaginn 3.júlí,
en á slaginu 08:00, þann sama dag, tekur óbreytt og áður birt dagskrá við á kynbótabrautinni.

Með von um að allar ytri aðstæður verði okkur hliðhollari á komandi dögum.

Sýningarstjórar kynbótahrossa á LM2014,

Pétur Halldórsson og Þórður Pálsson"

hh/ph