Sýning á Sörlastöðum dagana 27. til 29. maí.

Þar sem þrjár sýningar hér á suðvesturhorninu hafa verið felldar niður, þ.e.a.s. á Sörlastöðum, Borgarnesi og Selfossi hefur verið ákveðið að bjóða upp á sýningu á Sörlastöðum dagana 27. til 29. maí. Þetta er gert til að koma til móts við þá sem voru búnir að reikna með að koma hrossum á sýningu í maí.

Opnað verður fyrir skráningar á þessa sýningu mánudaginn 20. maí kl. 12 og lokaskráningardagur verður miðvikudagur 22. maí og fyrr ef sýning fyllist. Þar sem þetta er gert með stuttum fyrirvara verða skráningar að ganga hratt fyrir sig og það er einungis pláss fyrir 64 hross. Hross sem enn eru skráð inn á sýninguna sem vera átti á Sörlastöðum en var felld niður verða færð yfir á þessa sýningu. Þeir sem eiga skráð hross í Borgarnesi og á Selfossi munu ganga fyrir með pláss á sýningu ef þeir vilja.

Á mánudagsmorgun verður haft samband við eigendur þeirra hrossa sem skráð eru á Borgarnes- og Selfoss-sýningarnar og þeim boðið að fá endurgreitt eða fær hrossin yfir á Sörlastaði. Þeir sem sem hafa þegar ákveðið hvað þeir vilja gera mega gjarnan senda tölvupóst þar um á netfangið halla@rml.is

Uppröðun hrossa  á sýningunni verður síðan birt föstudaginn 24. maí. Nánari upplýsingar má fá hjá Höllu Eygló í síma 516-5024 eða senda tölvupóst á netfangið halla@rml.is.

Eins og venja er fer skráning og greiðsla sýningargjalda fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Rétt er að árétta að einungis er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Þegar greiðsla hefur tekist þá á að koma kvittun í tölvupósti, ef kvittunin kemur ekki hefur skráning trúlega ekki tekist. Þeir sem hafa aðgang að WF geta með því að fara inn í „sýningar“ séð hvort hrossið er komið inn á sýninguna. Ef hrossið birtist þar hefur allt gengið upp og hrossinu verður úthlutað tíma.

Verð fyrir fullnaðardóm er 26.000 kr. en fyrir sköpulags- eða hæfileikadóm 20.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. 

 

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí nk. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

 

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðu RML undir "Kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar" eða hringja í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir stóðhesta fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Ekki er hægt að skrá hryssur og geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.

Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga.