Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Eru ekki allir búnir að skila stóðhestaskýrslum fyrir síðastliðið ár? Hafa ef til vill einhverjir gleymt þeim niðri í skúffu! Endilega drífið í að skila svo hryssueigendur geti skráð folöldin, sem fæðast í vor, rafrænt í heimaréttinni. Eyðublöðum er hægt að skila inn á öllum starfsstöðvum RML. Ég vil benda á að nú er komið sérstakt eyðublað vegna fósturvísaflutninga en þar er hægt að gera grein fyrir meðgöngumóður. Öll eyðublöð vegna skýrsluhalds má nálgast á heimasíðu RML www.rml.is. Á sömu síðu er einnig að finna ýmsan annan fróðleik um hrossarækt. Hafið endilega samband ef ykkur vantar DNA-sýnatöku, örmerkingu, ungfolaskoðun, fóðurráðgjöf eða eitthvað annað tengt hrossum.
Halla Eygló Sveinsdóttir
Ráðunautur í hrossarækt hjá RML
Netfang: halla@rml.is
Símanúmer: 516-5024.
Sjá nánar:
Skýrsluhald í hrossarækt: Eyðublöð
hes/gj