Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Nokkuð hefur verið rætt og ritað um ærdauða að undanförnu og af þeim sökum hefur verið opnuð leið til að skrá vanhöld á sauðfé rafrænt með því að svara könnun þar að lútandi.
Bændur eru hvattir til að fara inn á bændatorgið á vefnum á slóðinni http://torg.bondi.is/notandi/ en þar undir má finna könnunina með því að velja Búnaðarstofu í valröndinni til vinstri og síðan undirliðinn Annað þar sem má finna lið sem heitir Ærdauði (http://torg.bondi.is/umsoknir/index/nyskra/tegund/5/). Þegar Ærdauði hefur verið valinn, þá þarf að smella á "Nýskrá" til að svara könnun um ærdauða í vetur og vor og einnig undanfarna vetur.
Leita má til starfsmanna Ráðgjafarmiðstöðvar Landbúnaðarins (RML), þeirra Árna B. Bragasonar í síma 516-5008, Sigurðar Kristjánssonar í síma 516-5043 og Steinunnar Önnu Halldórsdóttur í síma 516-5045 og þau aðstoða við að svara og skila könnuninni.
/sk