Starf rekstrarráðgjafa hjá RML

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsfólki í rekstrarráðgjöf. Um er að ræða fjölbreytt starfssvið í ráðgjafarteymi RML sem sinnir rekstrarráðgjöf í landbúnaði.

Starfs- og ábyrgðarsvið
 - Starf í ráðgjafarteymi RML sem sinnir rekstrarráðgjöf í landbúnaði.
 - Vinna við rekstrar- og fjármögnunaráætlanir fyrir bændur.
 - Vinna við rekstrargreiningar í búrekstri.
 - Þróun og sala á ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við aðra starfsmenn RML.
 - Önnur verkefni s.s. vinna við gerð og þróun líkana í excel, þátttaka í nýsköpunarverkefnum og samskipti við fjármálastofnanir.

Menntunar og hæfniskröfur
 - Háskólapróf sem nýtist í starfi.
 - Góð kunnátta á excel er nauðsyn.
 - Þekking á dk-Búbót bókhaldskerfinu eða sambærilegu kerfi er kostur.
 - Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð skilyrði.
 - Reynsla og þekking á verkefnastjórnun æskileg.
 - Góðir samskiptahæfileikar.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land.
Starfsemin er dreifð um landið á 12 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is
þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.

Umsóknarfrestur er til og með 21. október.

Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri klk@rml.is og Borgar Páll Bragason fagstjóri bpb@rml.is 

Sjá nánar:
Sækja um starf hjá RML

 /hh