Sóknarfæri og áskoranir vegna framleiðslu graspróteins á Íslandi - Skýrsla

Mikill áhugi hefur verið víða erlendis síðustu ár á framleiðslu próteins úr grasi. Sett hafa verið á fót stór rannsóknarverkefni, meðal annars í Danmörku, sem snúa að ýmsum þáttum próteinvinnslunnar sjálfrar sem og nýtingu þess sem fóðurs fyrir einmaga dýr.

Á Íslandi er nægjanlegt ræktarland fyrir framleiðslu á graspróteini en vaxtartímabilið er stutt. Það eru margir þættir sem áhugavert er að skoða og því var farið í að kanna sóknarfæri og áskoranir vegna framleiðslu á graspróteini á Íslandi.

Skýrsla sú sem hér er birt er hlutur RML í sameiginlegu verkefni Matís, LbhÍ og BÍ. Verkefnið var unnið með styrk úr Matvælasjóði.

Skýrsluna má nálgast hér.

/hh