Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Þann 15. júní verður opnað á skráningar á miðsumarssýningar og þann 18. júlí á síðsumarssýningar. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er skrá hross á kynbótasýningu. Einnig er hægt að skrá hér í gegnum heimasíðuna www.rml.is en á forsíðunni hægra megin er valmyndin skrá á kynbótasýningu. Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu má finna hér á heimasíðunni undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar.
Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningardag en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist fyrr lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Starfsmenn RML munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000 fram að 9.júlí en í síma 516-5005 frá og með 10. júlí, einnig verður hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. Hér fyrir neðan má sjá sýningar sumarsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.
Dags. |
Staður |
Loka skráningar- og greiðsludagur |
20.7- 24.7 |
Miðsumarssýning Gaddstaðaflötum |
sunnudagur, 12.7. |
27.7- 29.7 |
Miðsumarssýning Dalvík |
sunnudagur, 19.7. |
17.8- 21.8 |
Síðsumarssýning Miðfossum |
sunnudagur, 9.8. |
17.8- 21.8 |
Síðsumarssýning Selfossi |
sunnudagur, 9.8. |
17.8- 21.8 |
Síðsumarssýn. Sauðárkróki |
sunnudagur, 9.8 |
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á heimasíðunni, www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.
Verð fyrir fullnaðardóm er 21.700 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 16.700 kr. Mikilvægt er að ef greitt er með millifærslu í gegnum banka að greiðsla berist samdægurs og pöntunarnúmer fylgi millifærslunni.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreitt er 13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.
Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.
Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
lr/okg