Skráningar á kynbótasýningar vorsins

Í dag var opnað á skráningar á allar kynbótasýningar vorsins. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hér í gegnum heimasíðuna www.rml.is en á forsíðunni hægra megin er valmyndin „skrá á kynbótasýningu“. Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu má finna hér á heimasíðunni undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar

Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningardag en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Lena Reiher og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516 5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

 *Sýningin á Gaddstaðaflötum 1. -12. júní er tveggja vikna sýning. Við skráningu verður hægt að velja á hvora sýningarvikuna hross eru skráð. Gildir þá það sama og áður hefur komið fram að um leið og önnur sýningarvika fyllist er lokað fyrir skráningar á hana og eigendur/umráðamenn verða að velja hina vikuna. Hægt verður að skrá sama hrossið á báðar vikurnar. 

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á heimasíðunni þegar þær eru klárar, sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sýningargjöld - Breytt verð

Verð fyrir fullnaðardóm er 21.700 kr en fyrir byggingardóm/hæfileikadóm 16.700 kr. Athygli er vakin á því að nú er breytt fyrirkomulag á innheimtu ræktunargjalds sem rennur til reksturs WorldFengs en það er ákveðið gjald sem er rukkað af hverju sýndu hrossi. Það gjald hefur verið innifalið í sýningargjaldinu en er nú tekið út og bætist ofan á hið eiginlega sýningargjald, endanlegt gjald hækkar því um 1.200 kr. frá því í fyrra og hefur sú breyting verið staðfest af Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Mikilvægt er að ef greitt er með millifærslu í gegnum banka að greiðslan berist samdægurs og pöntunarnúmer fylgi millifærslunni.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreiddar eru 13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hrossum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni eða með því að hringja í okkur í síma 516 5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

hes/okg