Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Þann 18. apríl var opnað fyrir skráningar á allar kynbótasýningar vorsins. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er skrá hross á kynbótasýningu. Einnig er hægt að skrá hér í gegnum heimasíðuna en á forsíðunni hægra megin er valmyndin skrá á kynbótasýningu. Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu má finna hér á heimasíðunni undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar.
Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Lena Reiher, Halla Eygló Sveinsdóttir og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin lr@rml.is, halla@rml.is og rml@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.
*Sýningarnar á Gaddstaðaflötum, Mið-Fossum og í Spretti 30. maí til 10. júní eru tveggja vikna sýningar. Við skráningu verður hægt að velja á hvora sýningarvikuna hross eru skráð. Gildir þá það sama og áður hefur komið fram að um leið og önnur sýningarvika fyllist er lokað fyrir skráningar á hana og eigendur/umráðamenn verða að velja hina vikuna. Hægt verður að skrá sama hrossið á báðar vikurnar.
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á heimasíðunni þegar þær eru klárar, sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.
Sýningargjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 23.000 kr. en fyrir byggingardóm/hæfileikadóm 17.600 kr. Mikilvægt er að ef greitt er með millifærslu í gegnum banka, að greiðslan berist samdægurs og pöntunarnúmer fylgi millifærslunni. Talsvert hefur borið á því að pöntunarnúmer fylgi ekki og þá getur reynst erfitt að finna út fyrir hvaða hross var verið að greiða. Við viljum benda á að greiðsla með korti er mjög þægilegur kostur því þá birtist skráð hross strax inn á viðkomandi sýningu, þannig ekki er nein hætta á að greiðsla misfarist.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreiddar eru 13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn vottorði dýralæknis. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu fyrir hrossið sem kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hrossum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.
Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni eða með því að hringja í okkur í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is, halla@rml.is og rml@rml.is.
hes/okg