Síðsumarssýning á Miðfossum

Kynbótasýning fer fram á Miðfossum í Borgarfirði dagana 13. til 16. ágúst næstkomandi.
Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.


Síðasti skráningar- og greiðsludagur er þriðjudagurinn 6. ágúst. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningin hefst í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is.
Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.
Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðu RML þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Þá er valinn flipinn Kynbótasýningar til hægri á forsíðunni.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið rml@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.