Síðasti skráningardagur er í dag!

Síðasti skráningardagur á kynbótasýningar síðsumars er í dag 10. ágúst. Skráning verður opin til miðnættist. Sýningarnar sem um ræðir eru á Miðfossum, Sauðárkróki og Selfossi dagana 17. -21. ágúst, náist lágmarksfjöldi á sýningarnar. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www. worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross í kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá í gegnum heimasíðuna www.rml.is en á forsíðunni hægra megin er valmyndin „skrá á kynbótasýningu“. Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu má finna á heimasíðunni undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar. Starfsmenn RML munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig er hægt að senda t-póst á netföngin lr@rml.is og halla@rml.is.

Verð fyrir fullnaðardóm er 21.700 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 16.700 kr. Mikilvægt er að ef greitt er með millifærslu í gegnum banka að greiðsla berist samdægurs og pöntunarnúmer fylgi millifærslunni.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreitt er 13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

hes/gj