Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Síðasti skráningardagur á kynbótasýningu á Hvammstanga er þriðjudaginn 14. maí. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er Skrá hross á kynbótasýningu. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni.
Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða á hér á heimasíðunni undir "Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.
ga/okg