Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Fyrr í haust var sauðfjárbændum á öllu landinu boðið að skrá sig í fundaröðinna Sauðfjárskólann. Næg þátttaka fékkst aðeins á Norðurlandi og verða fundirnir haldnir í Skagafirði þar sem bændur úr Húnaþingi, Skagafirði og Eyjafirði koma saman. Fyrsti fundurinn verður haldinn í Tjarnarbæ við Sauðárkrók miðvikudaginn 18. nóvember n.k. og hefst kl 13:00. Pláss er fyrir þátttakendur frá nokkrum búum í viðbót en skráningar þurfa að berast í síðasta lagi fyrir hádegi þriðjudaginn 17. nóvember. Sauðfjárbændur á svæðinu eru hvattir til að nýta þetta tækifæri til endurmenntunar og samfunda við starfssystkini sín.
Upplýsingar um Sauðfjárskólann má finna hér á heimasíðunni og/eða heyra í umsjónarmanni þessa verkefnis Árna B. Bragasyni, netfang ab@rml.is, sími 516-5008 /895-1372.
Sjá nánar:
abb/okg