Sauðfjárskólinn kominn af stað á Suðurlandi og í Skagafirði

Einbeittir bændur á Kirkjubæjarklaustri
Einbeittir bændur á Kirkjubæjarklaustri

Um síðustu mánaðamót voru haldnir fyrstu fundirnir í Sauðfjárskólanum en hann felst meðal annars í sjö fræðslufundum um sauðfjárrækt á einu ári. Sauðfjárskólinn er nú haldinn fyrir sauðfjárbændur í Skaftafellssýslum, Rangárvallasýslu, Árnessýslu og Skagafirði. Þátttakendur koma frá 88 sauðfjárbúum og koma gjarnan tveir, jafnvel þrír aðilar frá hverju búi. Skráðir þátttakendur eru því um 150 og var mæting mjög góð á fyrstu fundunum. Grunnkennslugagn í Sauðfjárskólanum er bókin Sauðfjárrækt á Íslandi sem kom út fyrr á þessu ári. Umsjónarmaður þessa verkefnis er Árni B. Bragason en allmargir koma að kennslunni, flestir starfsmenn RML.

ább/okg