Röðun hrossa á kynbótasýninguna í Víðidal dagana 8. til 12. júní

Kynbótasýning verður í Víðidal dagana 8. til 12. júní 2015. Dómar hefjast kl. 8:00 mánudaginn 8. júní.  Yfirlitssýning verður föstudaginn 12. júní. Alls eru 139 hross skráð til dóms.
Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

hes/gj