Röðun hrossa á kynbótasýninguna á Kjóavöllum í Kópavogi dagana 22. - 24. júní

Aukasýning verður á Kjóavöllum á svæði hestamannafélags Spretts dagana 22. - 24. júní 2015.
Dómar hefjast kl. 13:00 mánudaginn 22. júní. Yfirlitssýning verður miðvikudaginn 24. júní. Alls eru 48 hross skráð til dóms.
Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn „Kynbótasýningar“
hér hægra megin á forsíðunni. Einnig má velja "Röðun hrossa á kynbótasýningum" undir Búfjárrækt/Hrossarækt.
Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms
þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.