Röðun hrossa á kynbótasýningu í Kópavogi 28.-29. maí

Kynbótasýning verður á Kjóavöllum í Kópavogi dagana 28.-29. maí 2015. Dómar fara fram fimmtudaginn 28. maí og hefjast klukkan 08:00. Yfirlitssýning verður föstudaginn 29. maí. Alls eru 35 hross skráð til dóms.

Búið er að birta hollaröðun á sýningunni hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röð hrossa 

Röð eftir knöpum 

hes/okg