Röðun hrossa á kynbótasýningu á Sörlastöðum 17.-20. maí.

Kynbótasýning verður á Sörlastöðum í Hafnarfirði 17.-20. maí 2016. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 þriðjudaginn 17. maí. Yfirlitssýning verður föstudaginn 20. maí og hefst hún kl. 9:00. Alls eru 99 hross skráð til dóms.

Búið er að birta hollaröðun á sýningunni hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röð hrossa 

Röð eftir knöpum 

hes/okg