Röðun hrossa á kynbótasýningu á Mið-Fossum 6.-9.júní

Kynbótasýning verður á Mið-Fossum í Borgarfirði dagana 6. til 9. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 12:30 mánudaginn 6. júní. Yfirlitssýning verður á fimmtudaginn 9. júní og hefst kl. 9:00. Alls eru 82 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér hægra megin á forsíðunni eða í gegnum tenglana hér að neðan.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röð hrossa 

Röð eftir knöpum 

lr/okg