Röðun hrossa á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum 8.-12. júní

Kynbótasýningu verður framhaldið á Gaddstaðaflötum dagana 8. til 12. júní 2015. Dómar hefjast kl. 8:00 mánudaginn 8. júní. Yfirlitssýning verður föstudaginn 12. júní. Alls eru 144 hross skráð til dóms.

Búið er að birta hollaröðun fyrir seinni vikuna hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar

Röð hrossa 

Röð eftir knöpum 

hes/okg