Röðun hrossa á Hólum, fyrri viku, 05.-08. júní

Kynbótasýning verður á Hólum í Hjaltadal dagana 5. til 8. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 þriðjudaginn 5. júní. Yfirlitssýning verður föstudaginn 8. júní. Alls eru 103 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:

Röðun hrossa á kynbótasýningum

Á vef Hólaskóla er hægt að fá leigð stíupláss sjá hér

-/agg