RML á landbúnaðarsýningu á Hrafnagili

Kynningarbás RML - Berglind Ósk Óðinsdóttir á vakt
Kynningarbás RML - Berglind Ósk Óðinsdóttir á vakt

Nú stendur yfir landbúnaðarsýning á Hrafnagili meðfram handverkshátíðinni sem þar er í gangi.  RML er á staðnum með sinn kynningarbás.  Þar er hægt að taka þátt í getraun, panta heysýnatöku sem og lambadóma eða bara taka spjall við okkar fólk.  Kíkið endilega við á Hrafnagili en sýningin er opin fram á sunnudag.