Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsmanni sem gæti sinnt fjölbreyttu þróunar- og ráðgjafarstarfi á sviði jarðræktar, fóðrunar og umhverfismála.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafastarfsemi RML. Æskilegasta staðsetning er Eyjafjörður eða Suðurland en aðrar starfsstöðvar koma einnig til greina.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið. Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars.
Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri klk@rml.is og Borgar Páll Bragason bpb@rml.is fagstjóri.
Smellið hér til að sækja um starf.
/hh