Ráðgjöf í framræslu og jarðrækt á Norður- og Austurlandi

Seinni part þessarar viku (miðvikudaginn 7., fimmtudaginn 8. og föstudaginn 9. maí) mun Kristján Bjarndal ráðunautur í jarðrækt og framræslu vera á ferðinni um Norður- og Austurland.

Ef bændur á þessu svæði hafa hug á að nýta sér þjónustu hans og fá hann í heimsókn geta þeir haft samband við hann beint í síma 896-6619.

Kristján er með starfsstöð á Selfossi en hann er okkar helsti sérfræðingur í framræslumálum. Til að halda kostnaði í lágmarki er mikilvægt að samnýta ferðir sem mest.

bpb/okg