Pantanir á sauðfjárskoðun

Þessa dagana berast til RML pantanir frá bændum um sauðfjárskoðun. Bændur eru eindregið hvattir til þess að panta tímanlega og æskilegt er að pantanir berist fyrir þann 20. ágúst.

Nú er að fara í póst bréf til þeirra sauðfjárbænda sem voru í viðskiptum við RML um sauðfjárskoðun 2015 en aðrir eru einnig hvattir til að kynna sér efni bréfsins sem veitir upplýsingar m.a. um fyrirkomulag sauðfjárskoðunar og pantanir.

Sjá nánar

Bréf til sauðfjárbænda 

Panta sauðfjárskoðun 

/okg