Óskað eftir sauðfjárdómurum

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins óskar eftir fólki sem hefur áhuga á að vinna við sauðfjárdóma næsta haust. Um er að ræða tímabundið verkefni í september og október 2014.

Gerð er krafa um að viðkomandi hafi lokið háskólagráðu í búvísindum. Undantekning er þó gerð ef viðkomandi hefur starfsreynslu sem sauðfjárdómari.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2014. Umsóknir berist á netfangið ee@rml.is. Nánari upplýsingar veitir Eyþór Einarsson 516-5014/862-6627/ee@rml.is.

ee/okg