Opnunartími um jól og áramót og viðvera á skrifstofum RML

Stjórn og starfsfólk Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins sendir bændum og landsmönnum öllum hugheilar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með kærum þökkum fyrir góð samskipti og samstarf á árinu sem er að líða. Skrifstofur RML verða lokaðar á Þorláksmessu, föstudaginn 23. desember. Ekki er viðvera á öllum starfsstöðvum milli jóla og nýárs þ.e. 27.-30. desember en síminn er opinn samkvæmt venju 27. -30. desember og hægt að senda okkur tölvupóst á rml(hjá)rml.is Við opnum svo á nýju ári mánudaginn 2. janúar 2023.

Hafið það gott yfir hátíðarnar.

Stjórn og starfsfólk RML