Opnað hefur verið fyrir umsóknir um jarðræktarstyrki

Á vef Bændasamtaka Íslands hefur verið auglýst að opnað hafi verið fyrir umsóknir um jarðræktarstyrki á Bændatorginu. Umsækjandi þarf að vera skráður fyrir búnaðargjaldsskyldri framleiðslu til að hljóta styrk. Sækja þarf um fyrir 10. september 2013. Á heimasíðu BÍ má finna frekari upplýsingar, sem dæmi eyðublað til að sækja um á pappírsformi fyrir þá sem það kjósa sem og reglur um framlög til jarðræktar og hreinsunar affallsskurða en þar er kveðið á um ráðstöfun fjármagns úr jarðræktarsjóði. 

Sjá nánar: Frétt á vef Bændasamtaka Íslands

bpb/okg