Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Í heimarétt Worldfengs hefst nýtt skýrsluhaldsár 1. apríl ár hvert. Eftir þann tíma er eingöngu hægt að skrá það sem tilheyrir núverandi ári. Notendur heimaréttar WF eru því hvattir til að skoða hvort síðasta ár sé ekki örugglega að fullu frágengið. Öll folöld skráð, búið að gera grein fyrir fangi, geldingum og afdrifum.
Eigendur stóðhesta eru sérstaklega minntir að samþykkja skráningar á fyli frá hryssueigendum hafi þeir ekki skila inn stóðhestaskýrslu. Til að skráningar á fyli frá eigendum hryssna verði virk þarf stóðhestseigandi að samþykkja skráninguna. Sé það ekki gert skilar skráningin frá hryssueigandanum sér ekki inn í folaldaskráningu þessa árs. Hryssur þurfa að hafa staðfest fang í WF til að eigendur þeirra hafi möguleika á að skrá folöld í gegnum sína heimarétt.
Til upprifjunar er rétt að benda á að hryssueigendur geta grunnskráð sín folöld sjálfir að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
Sjá nánar:
Leiðbeiningar um notkun heimaréttar Worldfengs
/okg