Nýr starfsmaður hjá RML

Guðrún Eik Skúladóttir er komin til starfa hjá RML. Hún mun starfa sem ráðunautur á Búfjárræktar- og þjónustu sviði. Guðrún Eik er í 100% starfi. Aðalstarfsstöð hennar er á Sauðárkróki.

Guðrún Eik hefur háskólamenntun í búvísindum frá Lbhí.
Netfang hennar er gudruneik(hjá)rml.is og síminn 516-5035
Við bjóðum Guðrúnu Eik velkomna til starfa hjá RML.

Á starfsstöðinni á Sauðárkróki starfa ásamt henni: Ditte Clausen ráðunautur á búfjárræktar- og þjónustusviði, Eiríkur Loftsson ráðunautur á rekstrar- og umhverfissviði, Eyþór Einarsson ráðunautur á búfjárræktar- og þjónustusviði, Kristján Óttar Eymundsson ráðunautur á rekstrar og umhverfissviði og Sigurlína Erla Magnúsdóttir ráðunautur á búfjárræktar- og þjónustusviði.