Ný ríkisstjórn hyggst stuðla að aukinni matvælaframleiðslu á Íslandi

Ný ríkisstjórn verður kynnt síðar í dag en í morgun kynntu formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar flokka sinna. Í yfirlýsingunni er að finna sérstakan kafla um landbúnað:

"Ríkisstjórnin lítur á landbúnað sem eina af mikilvægustu atvinnugreinum framtíðarinnar. Vaxandi eftirspurn eftir mat á heimsvísu skapar íslenskum landbúnaði sóknarfæri með möguleikum á aukinni framleiðslu og margbreytilegum afurðum. Ríkisstjórnin mun gera íslenskum landbúnaði kleift að nýta þau sóknarfæri sem greinin stendur frammi fyrir. Með það fyrir augum er brýnt að kanna með hvaða hætti er unnt að auka verðmætasköpun og nýta sem best tækifærin sem felast í sveitum landsins.
Til að bregðast við aukinni eftirspurn eftir matvælum og hækkandi verðlagi verður skipaður starfshópur til að móta tillögur um hvernig auka megi matvælaframleiðslu á Íslandi og tryggja að ávinningur af aukinni eftirspurn og sókn á nýja markaði skili sér í bættum kjörum bænda. Starfshópurinn mun fara yfir alla lagaumgjörð landbúnaðar, vinnslu matvæla og nýtingar lands. Mótaðar verði tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum sem ráðast þarf í til að ná settum markmiðum. Nýsköpun, markaðs- og sölumál verða einnig endurskoðuð. Starfshópurinn mun leita samráðs við fulltrúa þeirra sem starfa í greininni.

Stefnt er að endurskoðun búvörusamninga með tilliti til fóður- og fæðuframleiðslu.
Sveitarfélög verði studd í ákvarðanatöku um hvaða svæði séu helguð landbúnaði og lagarammi um þá hagsmuni bættur."

gj