Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Við viljum vekja athygli umráðamanna nautgripa á að reglugerð um merkingar búfjár hefur breytt á þann veg að að 2. málsgrein 6. greinar hefur verið felld brott. Málsgreinin hljóðaði þannig: Kálfar, sem slátrað er innan 20 daga frá fæðingu, skulu fluttir beint frá búinu í sláturhús og auðkenndir þannig að númer móður sé gefið upp við slátrun.
Þetta þýðir að merkja verður alla kálfa sem fæðast lifandi í bæði eyru innan 20 daga frá fæðingu hvort sem að þeim er slátrað nýfæddum eða þeir settir á til lífs.
Reglugerðarbreytinguna er að finna í Reglugerðasafni (www.reglugerd.is) eða með því að nota hlekkinn hér fyrir neðan.
Sjá nánar:
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár
/gj