Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í janúar

Kandís frá Stóra-Dunhaga í Hörgárdal, undan Þrym 22027 og Andý 1488. Mynd: Nautastöðin Hesti.
Kandís frá Stóra-Dunhaga í Hörgárdal, undan Þrym 22027 og Andý 1488. Mynd: Nautastöðin Hesti.

Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuði, nú að nýliðnum janúar, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað um hádegisbil þann 11. febrúar. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en rétt er að benda á töflur þær sem tengill er í hér neðst í fréttinni.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 442 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær nú til 113 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.

Reiknuð meðalnyt 24.594,9 árskúa á búunum 442 var 6.538 kg. eða 6.798 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 442 búum var 55,6.

Mest meðalnyt árskúa á uppgjörstímabilinu var líkt og síðustu mánuði, á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem meðalnytin reiknaðist nú 8.983 kg. Annað á listanum að þessu sinni var bú Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi, Rang. þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.833 kg. að meðaltali síðustu 12 mánuðina. Þriðja í röðinni reyndist vera bú Stóra-Dunhaga ehf. í Stóra-Dunhaga í Hörgárdal þar sem meðalnyt árskúnna var 8.593 kg. á uppgjörstímabilinu.

Nythæst á síðustu 12 mánuðum var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 15.136 kg. á umræddu tímabili. Önnur í röðinni var Snædís 1838 (f. Steri 13057) í Gunnbjarnarholti 2 Skeiða- og Gnúpverjahreppi en á uppgjörstímabilinu var nyt hennar 14.989 kg. Þriðja nythæsta kýrin að þessu sinni var Droplaug 875 (f. Dropi 10077) í Dalbæ í Flóa sem mjólkaði 14.505 kg. síðustu 12 mánuði.

Alls náðu 178 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir síðasta mánuð hafði verið skilað frá undir hádegi þann 11. febrúar, að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim hópi mjólkuðu 54 kýr 12.000 kg. eða meira og 14 þeirra skiluðu afurðum yfir 13.000 kg. á tímabilinu. Af þeim síðasttöldu mjólkuðu fjórar meira en 14.000 kg. og ein þeirra yfir 15.000 kg. sbr. fyrr.

Meðalfjöldi kúa á þeim 113 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 29,2 við lok janúar en árskýrnar á þeim búum voru á þeim tíma 27,8 að jafnaði. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.452,7 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.667 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 732,0 dagar.

Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum var mestur, var Reykir í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn varð 525 daga gamall og óx 625 g. á dag. Næst í röðinni var búið á Efstalandi í Öxnadal þar sem meðalgripurinn óx um 617 g. að meðaltali í 467 daga. Þriðja búið á þessum lista er Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem 607 daga gamlir gripir náðu að vaxa að meðaltali 604 g. á dag.

Þegar litið er á mestan meðalfallþunga sláturgripa var hann mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem skrokkþungi 799,0 daga gamalla gripa var að meðaltali 386,1 kg. Næst kom Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem meðalfallþungi 607,0 daga gamalla gripa var 377,7 kg. Þriðja efsta búið var síðan Saurbær í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem skrokkþungi 719,6 daga gamalla gripa var 363,9 kg. að jafnaði.

Rétt er að minnast þess að það sem hér hefur verið rakið er aðeins lítið brot af því sem er að finna á þeim listum sem birtir eru.

Þess er vert að geta hér að lokum að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2025