Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í apríl 2016

Tjaldur frá Birtingaholti 4
Tjaldur frá Birtingaholti 4

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í apríl síðastliðnum hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til laust eftir hádegið þ. 11. maí, höfðu skýrslur borist frá 92% þeirra 579 búa sem skráð voru til þátttöku. Reiknuð meðalnyt 24.087,7 árskúa á þessum búum, var 6.041 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg tala frá því fyrir mánuði síðan var 6.003 kg. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum fyrir apríl hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,7 og var óbreyttur frá fyrra mánuði. Rétt er að hafa í huga að skilin náðu ekki 100% og skoða ber niðurstöðurnar í samræmi við það.

Mest meðalnyt árskúa á síðustu 12 mánuðum var eins og undanfarna mánuði á búi Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var nytin 8.397 kg. Annað í röðinni, sama og fyrir mánuði var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.350 kg síðustu 12 mánuðina. Þriðja búið nú, einnig hið sama og við síðasta uppgjör var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem meðalárskýrin skilaði 8.085 kg. Fjórða á listanum, enn hið sama og fyrir mánuði var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellströnd í Dölum þar sem meðalnytin var 8.078 kg. Fimmta búið við lok apríl var bú Björgvins Rúnars Gunnarssonar á Núpi á Berufjarðarströnd en þar voru meðalafurðir síðustu 12 mánaða 7.946 kg. Eins og sjá má á þessari upptalningu er röðin í efstu sætum listans óbreytt frá því við lok mars sl. og ennfremur má geta þess að nú er meðalnyt árskúnna yfir 8.000 kg. á fjórum efstu búunum.

Nythæsta kýr síðustu 12 mánaða en fjórða við seinasta uppgjör var Máney nr. 370 (f. Lykill 02003) á Steinsstöðum II í Öxnadal, en hún skilaði 13.265 kg. Önnur í röðinni en fyrst við seinasta uppgjör var Fiðla 1074 (f. Boli 0889, undan Goða 05025) á Gili í Skagafirði en nyt hennar reyndist nú 12.585 kg. Þriðja kýrin á listanum en önnur í röðinni seinast var Emma nr. 738 (f. Bolti 09021) í Keldudal í Hegranesi í Skagafirði en hún skilaði nú 12.408 kg. Í fjórða sæti nú við lok apríl en þriðja við lok mars var Rauðsíða nr. 614 (f. Ófeigur 02016) í Garðakoti í Hjaltadal. Nyt hennar á síðustu 12 mánuðum var 12.123 kg. Fimmta á listanum nú var Storma 1439 (f. Kasper 1386 undan Takti 06046) en nyt hennar var 12.059 kg.

Alls náðu 54 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum fyrir apríl hafði verið skilað frá upp úr hádeginu þ. 11. maí, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Við seinasta uppgjör náðu 58 kýr því marki. Sex, af þessum 54 kúm, náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg. og af þeim skilaði ein meiri afurðum en 13.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk