Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. apríl 2015,  skv. reglugerð nr. 190/2011, með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði, 150 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 17 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 8 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 9
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 342.933 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 610.000 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 167.933 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 98.78 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2015. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 150 kr./l.

  

Kvótamarkaður 1. apríl 2015

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línanna reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup- og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna hvorki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.

 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  150,-  kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2014 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 180,6 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði,
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 542,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði,
  • að verð á greiðslumarki nú er 10 krónum hærra en það var á markaði þann 1. nóvember 2014.