Niðurstöður skýrsluhaldsins 2012

Uppgjör á skýrslum fjárræktarfélaganna fyrir árið 2012 lauk fyrir nokkru síðan. Afurðir á landsvísu hafa aldrei verið meiri í sögu skýrsluhaldsins sem spannar nú orðið nokkra áratugi. Afurðir eftir allar fullorðnar ær voru 27,3 kg. Þær voru 26,5 kg árið 2011 og fara þarf aftur til ársins 2000 til að finna sambærilegar afurðir. Á þeim tíma var þátttaka í skýrsluhaldinu líka helmingi minni en hún er í dag. Árangurinn árið 2012 er því glæsilegur í því ljósi, og ekki síst vegna þess hversu öfgakennt tíðarfarið var á árinu. Víða voru miklir sumarþurrkar og snemma í september kom mikið hret á norðanverðu landinu sem gerði án efa það að verkum að afurðir urðu minni en ella hefði orðið. Nánar verður greint frá helstu niðurstöðum í Bændablaðinu innan tíðar.

Helstu niðurstöður er aðgengilegar hér á heimsíðunni undir Búfjárrækt - Skýrsluhald, eða með því að smella hér. /eib