Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum maí

Hálsi frá Signýjarstöðum í Hálsasveit, undan Kvóta 19042 og kú nr. 922. Mynd: Nautastöðin Hesti.
Hálsi frá Signýjarstöðum í Hálsasveit, undan Kvóta 19042 og kú nr. 922. Mynd: Nautastöðin Hesti.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar síðustu 12 mánuðina, þegar maí er á enda runninn, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað undir nón þann 11. júní.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 441 búi en uppgjör kjötframleiðslunnar náði að þessu sinni til 117 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.139,9 árskúa á búunum 441 var 6.518 kg. eða 6.480 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum 441 búi var 54,7.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var líkt og undanfarið á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, en hún reyndist að þessu sinni 9.012 kg. Annað á listanum, eins og við lok apríl var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr skilaði að jafnaði 8.584 kg. mjólkur á tímabilinu sem um ræðir. Þriðja líkt og fyrir mánuði var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.550 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða að þessu sinni var bú Hellisbúsins ehf. í Kolsholti 1 í Flóahreppi þar sem meðalafurðir árskúa voru 8.535 kg. Fimmta í röðinni var síðan bú Björgvins Rúnars Gunnarssonar á Núpi á Berufjarðarströnd þar sem meðalnyt árskúa var 8.501 kg. Framantalin bú eru hin sömu og við lok aprílmánaðar, eina breytingin er að bú nr. 4 og 5 hafa skipst á sætum.

Nythæst á síðustu 12 mánuðum var, líkt og við síðasta uppgjör, kýr nr. 988 (f. Strákur 10011) á Núpi á Berufjarðarströnd sem mjólkaði 15.263 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni, eins og seinast, var Skessa (f. Fossdal 10040) á Stóru-Reykjum í Flóa en nyt hennar reyndist 13.782 kg. á tímabilinu. Þriðja kýrin á listanum núna var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 13.631 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða varð Þula 3144 (f. Þróttur 17023) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem skilaði 13.089 kg. mjólkur á uppgjörstímabilinu. Fimmta í röðinni að þessu sinni var Stör 1132 (f. Dynur 16002) í Kolsholti 1 í Flóa en nyt hennar var 13.497 kg. á umræddum tíma.

Alls náðu 146 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum aprílmánaðar hafði verið skilað frá nær nóni þann 11. júní að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim hópi mjólkuðu 34 yfir 12.000 kg. og 15 af þeim skiluðu afurðum yfir 13.000 kg. á umræddu tímabili. Af þeim mjólkaði ein meira en 15.000 kg. eins og fram kemur hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á þeim 117 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 29,0 við lok maí en árskýrnar á þeim búum voru á þeim tíma 26,5 að jafnaði. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum reyndist 6.863,5 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.643 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 256,8 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 740,1 dagur.

Athugið að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði eins og áður hefur verið bent á.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023