Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuði, nú að liðnum febrúar, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar liðið var að nóni þann 11. mars. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en rétt er að benda á að mun meiri upplýsingar er að finna í töflum þeim sem tengill er í hér neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 437 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær nú til 115 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.193,2 árskúa á búunum 437 var 6.531 kg. eða 6.790 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 437 búum var 55,4.
Mest meðalnyt árskúa nú var á búi Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi, Rang. þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.768 kg. að meðaltali síðustu 12 mánuðina. Annað í röðinni var bú Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem meðalnytin reyndist 8.741 kg. Þriðja í röðinni reyndist síðan vera bú Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi en þar mjólkaði meðalárskýrin 8.545 kg. á síðustu 12 mánuðum.
Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Droplaug 875 (f. Dropi 10077) í Dalbæ í Flóa sem mjólkaði 15.164 kg. á því tímabili. Önnur var Snædís 1838 (f. Steri 13057) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en á uppgjörstímabilinu var nyt hennar 14.825 kg. Þriðja nythæsta kýrin núna var Skerja 638 (f. Spennir 12027) í Kolsholtshelli í Flóa sem mjólkaði 14.812 kg. síðustu 12 mánuði.
Alls náðu 188 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir síðasta mánuð hafði verið skilað frá undir nón þann 11. mars, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim hópi mjólkuðu 57 kýr 12.000 kg. og þar yfir. Enn fremur mjólkuðu 10 þeirra yfir 13.000 kg. á tímabilinu. Af þeim síðasttöldu mjólkuðu fjórar meira en 14.000 kg. og þar að auki mjólkaði ein þeirra yfir 15.000 kg. eins og fram hefur komið.
Meðalfjöldi kúa á þeim 115 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 28,4 nú við endaðan febrúar en árskýrnar á þeim búum voru á þeim tíma 27,3 að jafnaði. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.307,6 kg. á undanförnum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.569 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,1 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 731,4 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum var mestur, var Reykir í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn varð 507 daga gamall og óx 645 g. á dag. Næst í röðinni var búið á Efstalandi í Öxnadal þar sem meðalgripurinn óx um 617 g. að meðaltali á 467 dögum. Þriðja búið á listanum er Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem 605 daga gamlir gripir náðu að vaxa að meðaltali 602 g. á dag. Þessi röð hefur ekki breyst frá því fyrir mánuði síðan.
Þegar litið er á mestan meðalfallþunga sláturgripa var hann mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem skrokkþungi 799 daga gamalla gripa var að meðaltali 377,7 kg. Næst kom Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem meðalfallþungi 605 daga gamalla gripa reiknaðist 374,8 kg. Þriðja efsta búið var síðan Minni-Mástunga í hinum forna Gnúpverjahreppi þar sem skrokkþungi 641 dags gamalla gripa var 364,8 kg. að jafnaði.
Aftur má minna á að það sem hér hefur verið rakið er aðeins lítið brot af því sem er að finna á þeim listum sem birtir eru.
Þess er vert að geta hér að endingu að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.
Sjá nánar:
rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2025